Sólríkur sumardagur í dag. Þokan lét undan og hvarf á braut. Það verður allt svo fallegt og skemmtilegt í góðu veðri.
Það líður að fæðingu, en settur dagur er fimmtudagurinn í næstu viku - 17. júlí. Ég er nett kvíðin fyrir fæðingunni þar sem fyrri reynsla var, ja ekki svo notaleg!!!!! En ég bind vonir við auðveldari og fljótari fæðingu í þetta skiptið.
Allt er að verða klárt fyrir komu prinsins en þó á eitthvað eftir að græja. Engir fyrirvaraverkir og heilsan nokkuð fín.
Vorum í brúðkaupi á laugardaginn hjá æskuvini Bigga. Hefði alls ekki viljað missa af því.
Ættarmót á Borgarfirði eystri var haldið án okkar með pompi og prakt... við förum bara næst.
Biggi er kominn í vaktafrí og er ég gríðarlega fegin því. Stubbulínan okkar hættir hjá dagmömmunni á föstudaginn og fer svo í leikskóla í byrjun ágúst. Litla stelpan mín er að verða svo stór.
Læt vita af komu drengsins.